ABS
Skoðanakönnun
Fylgist þú með HM?
Notandi:
Lykilorð:

ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.

 

19. febrúar 2010 14:17

Hvaða vefborðar virka?

Markaðsrannsóknafyrirtækið, Dynamic Logic, gerða viðmikla rannsókn á 2.316 netherðum yfir þriggja ára tímabil. Greiningin leiddi í ljós tíu atriði sem skiptu mestu máli við hönnun vefborða.

 

1.       Hafa vöruna áberandi á öllum römmum auglýsingarinnar.

2.       Hver rammi auglýsingarinnar þarf að geta staðið stakur.

3.       Auglýsingar þar sem skilaboð koma í ljós í lokin skila lakari árangri.

4.       Einföld skilaboð.

5.       Hafa mynd af vörunni og manneskju í auglýsingunni.

6.       Fólk skilji skilaboðin fyrirhafnalaust.

7.       Ekki reyna á þanþol þeirra sem heimsækja miðill sem auglýst er á.

8.       Staðsetnigar og stærð auglýsingar skiptir máli.

9.       Nýta einstaka möguleika netsins.

10.   Netauglýsingar þurfa að vera í samræmi við auglýsingar í öðrum miðlum.

 

 

Þessi atriði eru eingöngu gott að hafa til viðmiðunar. Margt  fleira þarf að koma til þegar hannaðir eru vefborðar. Hugmyndaauðgi og frumleiki eru lykilatriði við hönnun vefborða. Það er sífellt erfiðara að koma skilaboðunum á framfæri í öllu því auglýsingaáreiti sem er á netinu. En það er ekki nóg að vera bara frumlegur, auglýsingin þarf að vera í samræmi við markhópinn og ímynd vörunnar.

Senda á Facebook
ABS Fjölmiðlahús ehf - kt. 700701-2040 - Bergstaðastræti 54 - 101 Reykjavík - Sími: 510 8700 - absmedia@absmedia.is