3. febrúar 2010 15:24
AUGLÝSINGATÍMI Í SUPER BOWL UPPSELDUR
Auglýsingatíminn í Super Bowl er uppseldur að sögn forráðamanna CBS sjónvarpstöðvarinnar sem sendir leikinn út þann 7. febrúar næst komandi.
Að þessu sinni kostar 30 sekúndna auglýsing á bilinu 2,5 – 3 milljónir dollara og hefur stöðin selt á bilinu 60-70, 30 sekúndna auglýsingar inn í útsendinguna frá leiknum. Auglýsingasala fyrir þennan úrslitaleik er aðeins frábrugðin fyrri árum að því leiti að nú býður stöðin “pakka” þar sem blandað er saman auglýsingum inn í leiknum sjálfum og í upphitun fyrir leikinn. En það er í takti við tíðarandann vestra þar sem jafnvel allra stærstu auglýsendur hafa dregið saman seglin.
Pepsi, Fedex og General Motors sem öll hafa verið fastir kaupendur að auglýsingaplássi undanfarin ár í SuperBowl hafa ákveðið að vera ekki með núna.
Samt sem áður er ekki skortur á auglýsendum eins og sjá má hér.
Allar auglýsingarnar ættu síðan að vera komnar út á netið fljótlega eftir að þær verða frumsýndar. Sjá má skemmtilegar pælingar varðandi SuperBowl hér.
Þess má geta að Stöð 2 Sport mun senda leikinn sjálfan út í beinni útsendingu.