ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.
Framlag skosku söngkonunnar, Susan Boyle, í þættinum Britain's got talent var langvinsælasta myndbandið á youtube árið 2009.
Ríflega 120 millónir manns víðs vegar um heiminn horfðu á Boyle syngja lagið „I dreamed a dream“ úr söngleiknum Vesalingarnir. Hún heillaði ekki bara dómarana, Simon Cowell og félaga, heldur líka heimsbyggðina alla í einu vetfangi í gegnum netið.
Myndbandið var með margfallt meira áhorf en það sem lenti í öðru sæti.
Þetta er í fyrsta sinn sem youtube gefur út lista yfir vinsælustu myndböndin.
Hérna er listinn yfir vinsælustu mynbönd ársins á youtube.
Sæti
Myndband
Fjöldi í milj.
1
Susan Boyle
120
2
Dave after Dentiste
37
3
JK Weeding Entrace Dance
33
4
New Moon Movie Trailer
31
5
Evian Roller Babies
27