ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.
Í nýjustu mælingu Capcent á sjónvarpsáhorfi minnkar áhorfið á Skjá einn og áhorf Stöðvar 2 eykst en áhorf RÚV helst óbreytt á milli vikna.
Áhorf Skjás eins hefur minnkað jafnt og þétt frá því að stöðin breyttist í áskriftarstöð eins og sjá má á myndinni hér að neðan. Í síðustu viku mældist uppsafnað vikulegt áhorf Skjás eins tæp 40% en að jafnaði hefur það mælst í kringum 75% frá því að rafrænar sjónvarps mælingar hófust.
Uppsveiflu Stöðvar 2 má af einhverju leyti rekja til þess að áhorfendur Skjás eins hafa flutt sig yfir eftir að stöðinni var lokað.
Uppsafnað vikulegt áhorf árið 2009 (smella á mynd til að stækka)