ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.
Guðmundur Arnar Guðmundsson og Kristján Már Hauksson hafa gefið út fyrstu bókina á íslensku sem fjallar um markaðsetningu á netinu. Bókin er hugsuð sem hagnýt rit fyrir íslenskt markaðsfólk sem vill ná betri árangri í starfi.
Í bókinni er meðal annars fjallað um: Breytt umhverfi fyrirtækja og vörumerkja ásamt breyttri kauphegðun neytenda
Hvernig ber að haga birtingarmálum á netinu?Hvernig nær maður árangri með vefborðum? Hvernig nær maður árangri á leitarvélunum? Hvernig nær maður árangri á samfélagsmiðlunum (eins og Facebook)? Hvernig nær maður árangri með tölvupóstum? Hvernig notar maður vefgreiningartól?
Bókin fæst í bóksölu stúdenta og meðlimir Ímark geta pantað hana á netinu í gegnum slóð sem send verður út á næstunni í tölvupósti.