ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.
Útvarpshlustun hefur mælst jöfn frá því að rafrænar mælingar á útvarpshlustun hófust í janúar 2008. Meðalhlustun á útvarp mælist tæpar tvær klukkustundir á dag árin 2008 og 2009.
Hlustun á útvarp hefur þó minnkað lítilega frá því í byrjun október á þessu ári. Þess má geta að tvær útvarpstöðvar, Kanninn og útvarp Saga, eru ekki þátttakendur í rafrænum mælingum - enn sem komið er.
Meðalhlustun á dag í mínútum 2008 og 2009 (stækkar mynd)
Útvarpstöðvarnar, Bylgjan og Rás 2, hafa skipst á að taka forystuna um mestu útvarpshlustunina á þessu ári . Undanfarna mánuði hefur þó dregið í sundur með stöðvunum. Í nóvember var meðalhlustun á Bylgjuna 40 mínútur og á Rás 2 rúm hálft klukkustund á dag.
Meðalhlustun á útvarp í mínútum (stækka mynd)