17. nóvember 2009 14:05
Spurningar og svör um Social Media
Hvað er Social Media?
Vettvangur fyrir fólk og fyrirtæki til að eiga rafræn samskipti með það að leiðarljósi að miðla upplýsingum. Undir social media falla samskiptavefir eins og Facebook og Twitter.
Til hvers?
Byggja upp og viðhalda tengslum á einfaldan og fljótlegan hátt. Persónuleg samskipti við “fjöldann”. Bein samskipti við hóp fólks sem hefur samþykkt þitt fyrirtæki sem vin gefa þér færi á að ná til þeirra án þess að leggja í mikinn tilkostnað.
Hvernig virkar Social Media?
Ef við nefnum Facebook sem dæmi býðst fyrirtækjum að stofna þar sérstakar aðdáenda “fan” síður í sínu nafni/vörumerki. Aðdáendur síðunnar fá orðsendingu á sinn vegg í hvert sinn sem fyrirtækið setur inn færslur og geta þannig fylgst með gangi mála. Síðan er gagnvirk þannig að aðdáendur geta sagt sína skoðun eða látið hana í ljós.
Hvernig nýtum við Social Media?
Til að aðdáendasíða virki þarf hún að hafa persónuleika og vera lifandi. Það má gera með því að vekja stöðugt athygli á viðburðum og fréttum á persónulegan hátt. Tilboð til aðdáenda eða leikir auka einnig líkur á virkum samskiptum.
Hverjir sjá boðin?
Aðeins aðdáendur tiltekinnar síðu fá skilaboðin til sín og því er mikilvægt að vera vinsæll! Því fleiri sem skrá sig þeim mun víðar fara boðin. Leiðir til að fá fólk til að skrá sig geta verið mismunandi, allt frá því að auglýsa síðuna almennt eða á Facebook yfir í leiðir sem ganga mann frá manni innan samskiptakerfis.