ABS
Skoðanakönnun
Lestu hverfisblaðið/bæajarblaðið þitt?
Notandi:
Lykilorð:

ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.

 

30. október 2009 12:27

Áhorf á fréttir Skjás 1

Skjár 1 hóf nýverið útsendingar á sjónvarpsfréttum í samvinnu við Morgunblaðið. Fréttatíminn fer vel af stað  fyrstu vikuna, rúmlega þriðjungur þjóðarinnar horfði eitthvað á fréttatíma Skjás 1 klukkan 18.50 og 21.50.  Seinni fréttatíminn nýtur meiri vinsælda en fyrri tíminn. 

 

Í síðustu viku horfði 75% landsmanna eitthvað á fréttatíma RÚV, 66% horfði á fréttatíma Stöðvar 2, tæplega helmingur horfði á Tíufréttir á RÚV og fimmtungur á seinni fréttatíma Skjás 1.

 

Ríflega helmingur landsmanna fylgdist með Ísland í dag og 60% fylgdist með Kastljósi RÚV. Að jafnaði horfði 22% þjóðarinnar á Ísland í dag og Kastljósið.

 

Í þessum samanburði er mikilvægt að hafa í huga að fréttir RÚV og Stöðvar 2 eru sýndar sjö daga vikunnar en fréttatími Skjás 1 er einungis sýndur á virkum dögum og endursýndur kl. 21.50 á hverju kvöldi.  

 

 Áhorf á fréttir, Kastljós og Ísland í dag (12-80 ára)

Stöð  Þáttur Meðaláhorf Uppsafnað vikulegt áhorf
Sjónvarpið Fréttir kl. 19.00 24,3% 74,4%
Stöð 2 Fréttir kl. 18.30 23,9% 65,8%
Sjónvarpið Fréttir kl. 22.00 20,7% 46,3%
Skjár 1 Fréttir kl. 18.50 3,6% 15,2%
Skjár 1 Fréttir kl. 21.50 7,2% 26,7%
Stöð 2 Ísland í dag  22,7% 53,0%
Sjónvarpið Kastljós 22,1% 60,1%

Rafrænar mælingar Capcent vika 43 19-25 október 2009 

Senda á Facebook
ABS Fjölmiðlahús ehf - kt. 700701-2040 - Bergstaðastræti 54 - 101 Reykjavík - Sími: 510 8700 - absmedia@absmedia.is