ABS
Skoðanakönnun
Fylgist þú með HM?
Notandi:
Lykilorð:

ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.

 

24. september 2009 14:16

Tæplega 50% þjóðarinnar á Facebook

ABS fjölmiðlahús hefur í rúmt ár fylgst með fjölda íslenskra notenda á samfélagsvefnum Facebook. Íslenskum notendum fjölgaði um helming frá haustinu 2008 til áramóta 2009.

 

Síðastliðið haust voru 60.000 íslenskir notendur skráðir á síðuna en um síðustu áramót voru þeir orðnir 120.000. Frá síðustu áramótum hefur þeim fjölgað jafnt og þétt og í dag eru þeir samtals 158.300 eða tæplega 50% af þjóðinni.

 

Áhugi íslenskra kvenna er þó nokkuð meiri en karlmanna á samskiptasíðunni.  Kynjaskiptingin er 55% konur á móti 45% karla.

 

Mikilvægt er að hafa í huga að tölurnar eru aðeins ýktar. Oft er um tvítalningu að ræða þar sem sumir eru með tvo prófíla og stofnaðar eru síður fyrir fyrirtæki, félagasamtök og aðdáendaklúbba.

 

Þróun Facebook-notenda á Íslandi (smella til að stækka mynd)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Samanburður við Norðurlöndin

Í samanburði við Norðurlöndin eru Íslendingar hlutfallslega mjög virkir á Facebook.  Ísland og Noregur skera sig þó úr með tæplega helming skráða notendur á samskiptasíðuna.

 

Fjöldi Facebook-notenda á Norðurlöndunum

 

Land

Fjöldi á Facebook

Fjöldi íbúa

% íbúa

Danmörk

2.163.520

5.519.000

39,2%

Finnland

1.305.360

5.326.000

24,5%

Ísland

158.300

319.000

49,6%

Noregur

2.251.100

4.812.000

46,8%

Svíþjóð

2.700.860

9.302.000

29,0%

 

 

Á þessari síðu má sjá útbreiðslu Facebook-notenda á heimsvísu. Á síðunni er hægt að sjá fjölda og hlutfall notenda eftir löndum.

 

Senda á Facebook
ABS Fjölmiðlahús ehf - kt. 700701-2040 - Bergstaðastræti 54 - 101 Reykjavík - Sími: 510 8700 - absmedia@absmedia.is