24. ágúst 2009 11:10
Harður slagur Eyjunnar og Pressunnar
Þessa dagana er mikið kapphlaup á milli helstu fréttavefsíðna landsins, Eyjunnar og Pressunnar.
Á teljari.is hefur vikulegur heimsóknarfjöldi Eyjunnar mælst rúmlega 60.000 en ísíðustu viku var gestafjöldi Pressunnar komin í 57.000 heimsóknir.
Eyjan hafði framan af öruggt forskot en núna vantar einungis örfá þúsund gesta til að hún standi jafnfætis samkeppnisaðilanum.
Vinsældir þessara miðla hjá auglýsendum hafa vaxið jafn og þétt upp á síðkastið.
Eyjan er í níunda sæti og Pressan í því tíunda yfir vinsælustu vefsvæði landsins á teljari.is. Hér að neðan er listi yfir tíu vinsælustu vefsvæðin.
Samræmd vefmæling á teljari.is í viku 33.
| Nr. |
Vefur |
Útgefandi |
Fjöldi notenda |
| 1 |
eve-online.com |
CCP hf. |
343.877 |
| 2 |
mbl.is |
Árvakur hf |
301.172 |
| 3 |
visir.is |
365 prentmiðlar ehf |
214.081 |
| 4 |
ja.is |
Já upplýsingaveitur hf. |
146.293 |
| 5 |
blog.is |
Árvakur hf |
108.987 |
| 6 |
dv.is |
Birtingur |
91.614 |
| 7 |
ruv.is |
Ríkisútvarpið ohf. |
74.285 |
| 8 |
vedur.is |
Veðurstofa Íslands |
64.077 |
| 9 |
eyjan.is |
Invis ehf. |
61.668 |
| 10 |
pressan.is |
Vefpressan ehf. |
56.652 |