ABS
Skoðanakönnun
Fylgist þú með HM?
Notandi:
Lykilorð:

ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.

 

24. ágúst 2009 11:06

Spennandi sjónvarpsvetur framundan

Veturinn er að nálgast eins og sjá má á vetrardagskrá sjónvarpsstöðvanna.

 

Sjónvarpið: Helstu innlendu þættirnir frásíðastliðnum vetri halda áfram: Útsvar, Spaugstofan, Silfur Egils, Kiljan og íslenskar heimilarmyndir af ýmsu tagi áþriðjudagskvöldum.

 

Gamlir kunningar mæta aftur á skjáinn: Trúður (Klovn) - tvær tíu þátta syrpur, Glæpurinn (Forbrydelsen), Aðþrengdar eiginkonur (Desperate Housewives), Njósnadeildin (Spooks), Lífsháski (Lost), Sporlaust (Without a Trace), Bráðavaktin (ER), Illt blóð(Wire in the Blood). Einnig verða fjölmargir nýir erlendir þættir ádagskráeins og: Hvaler (norsk syrpa), Lost in Austen, Bonekickers (hasar- og ævintýrasyrpa), Flash Forward (nýbandarísk þáttaröð), Gary Unmarried (gamanþáttaröð), Criminal Justice, Himmelblå, Make it or Break it o.fl.

 

Skjár 1: Fjölbreytt úrval af íslensku efni verður á dagskrá Skjás eins í vetur. Þessir þættir halda áfram: Innlit-útlit, Nýtt útlit, Game Tíví, Fyndnar fjölskyldumyndir aðþessu sinni meðLadda, SpjalliðmeðSölva. Þrír nýir íslenskir þættir hefja göngu sína í haust. Skemmtigarðurinn er fjölskylduþáttur í umsjón Eyþórs Guðjónssonar. Í hverjum þætti munu tvær fjölskyldur etja kappi og reyna aðleysa allskyns þrautir. Í þættinum Matarklúbburinn matreiðir Hrefna Rósa ljúffenga og einfalda rétti fyrir áhorfendur og gesti sína. Og loks er það þátturinn Lífsaugað í umsjón Þórhalls Guðmundssonar miðils.

 

Gamlir kunningar mæta aftur á skjáinn: Dexter, House, 30 Rock, CSI: NY og Miami. Af nýjum erlendum þáttum mánefna: Nurse Jackie, United States of Tara, Beautiful Life og Harper‘s Island.

 

Stöð 2: Mikið úrval verður af innlendu efni ádagskrá Stöðvar 2. Það sem ber hæst er Fangavaktin, Ástríður, Auddi og Sveppi, Logi íbeinni, Sjálfstætt fólk og Algjör Sveppi. Eftir áramótin verða tveir nýir íslenskir þættir á dagskrá sem verða kynntir síðar. Þessar þáttaraðir snúa aftur: Grey‘s Anatomy, Mad Men, Fringe, Mentalist, American Idol og 24. Af nýjum þáttum mánefna: Glee, Modern family, The No. 1 Ladies´Detective Agency og Forgotten.

 

ÍNN: Þessir þættir frá síðastliðnum vetri halda áfram: Hrafnaþing, Eldum íslenskt, Skýjum ofar, Leiðir Gauja litla, Borgarlíf og Neytendavaktin. Þessir þættir eru nýir á dagskrá í vetur: Þjóðmálaþáttur Björns Bjarnasonar, Hestafréttir í umsjón Fjölnis Þorgeirssonar og nýr kvennaþáttur hefur göngu sína sem verður í anda Mér finnst. 

Senda á Facebook
ABS Fjölmiðlahús ehf - kt. 700701-2040 - Bergstaðastræti 54 - 101 Reykjavík - Sími: 510 8700 - absmedia@absmedia.is