ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.
Ríkisútvarpið mun hætta birtingum auglýsinga í kringum barnaefni í Sjónvarpinu. Bannað verður að birta auglýsingar í tengslum við barnaefni sem sýnt er þegar líklegt er að börn horfi ein á sjónvarp fyrir kl. 18.00 á daginn.
RÚV tók einnig upp nýjar reglur um auglýsingar og kostun dagskrárefnis. Þessar reglur eru unnar með hliðsjón af leiðbeiningum um aukna neytendavernd barna sem talsmaður neytenda og umboðsmaður barna gáfu nýlega út.
Reglur Ríkisútvarpsins um auglýsingar og kostun.