ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.
Samkomulagið felur í sér að flokkarnir skuldbinda sig til að takmarka kostnað við auglýsingabirtingar í dagblöðum, netfjölmiðlum og ljósvakamiðlum á landsvísu. Heildarkostnaður hvers flokks vegna auglýsingabirtinga verði ekki hærri en 14 milljónir króna.
Fyrir síðustu kosningar var í fyrsta skiptið sett þak á birtingakostnað flokkanna en þá var hámarksfjárhæðin 28 miljónir. Stjórnmálaflokkarnir sem standa að samkomulaginu telja að nú þurfi að koma enn frekari böndum á útgjöld vegna kosningabaráttunnar og því sé rétt að helminga upphæðina frá 2007.
Sjá frétt á visir.is