ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.
Hilmar Björnsson, sjónvarpsstjóri Skjás Golfs, hefur verið ráðinn nýr dagskrárstjóri Skjás eins.
Hilmar tekur við af Kristjönu Thors Brynjólfsdóttur. Hilmar hefur verið sjónvarpsstjóri Skjás Golfs undanfarna mánuði en hann hefur mikla reynslu úr fjölmiðlaheiminum. Hilmar var sjónvarpsstjóri Sýnar (Stöðvar 2 Sport) og einnig sá hann um útsendingar RÚV frá HM í knattspyrnu 2010.
Í samtali við dagblöð um helgina segist nýráðinn sjónvarpsstjórinn ætla að halda í þá 25 þúsund áskrifendur sem Skjár 1 hefur nú þegar. Segir Hilmar að það sé þekkt dæmi að góð íslensk dagskrárgerð selur áskriftir og megum við því eiga von á góðu með haustinu.