23. maí 2011 09:04
BNA: Aukning í "digital birtingum" hefur ekki áhrif á sjónvarp
Bandrarískir auglýsendur halda áfram tryggð sinni við sjónvarpsauglýsingar en spár gera ráð fyrir að hlutfall sjónvarps í auglýsingakökunni haldist óbreytt til 2015 með u.þ.b. 39% hlut.
Í grein eMarketer.com koma fram áhugaverðar spár fyrir bandarískan auglýsingamarkað. Þótt ekki sé gert ráð í spánni, sem gildir til 2015 , að auglýsingaeyðsla nái 2007 árinu, þá er samt gert ráð fyrir aukningu næstu ár.
Hlutur Online/digital í heildarpakkanum er spáð að vaxi úr 15% af heild í 25% árið 2015. Online/digital er samt ekki að taka neitt af sjónvarpi eða útvarpi heldur fyrst og fremst af hefðbundnu miðlunum s.s. prentmiðlum, dagblöðum og skráningarbókum (e. directories) hvers konar.
Sjá má spánna hér.