ABS
Skoðanakönnun
Lestu hverfisblaðið/bæajarblaðið þitt?
Notandi:
Lykilorð:

ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.

 

18. maí 2011 08:46

Nýir miðlar í "Kraganum"

Tveir nýir fjölmiðlar hafa litið dagsins ljós á undanförnum vikum í m.a. Hafnarfirði, Kópavogi og Garðabæ.

Fríblaðinu Hafnarfjörður / Garðabær / Álftanes er dreift í 15.000 eintökum í allar íbúðir á svæðinu. Útgefandi er Fótspor ehf og ábyrgðarmaður Ámundi Ámundason. Nú þegar hafa 9 tölublöð litið dagsins ljós. Blaðið er í hefðbundinni dagblaðastærð og prentað hjá Ísafold.

 

Vikudagskráin, sem er sjónvarps-, menningar- og viðburðadagskrá í Kópavogi, Garðabæ, Álftanesi og Hafnarfirði, er dreift í 27.000 eintökum inn á öll heimili og fyrirtæki á svæðinu. Ritstjóri er Valdimar Tryggvi Kristófersson. Blaðið er í A5 stærð og prentað hjá Ísafoldarprentsmiðju.

 

 

Senda á Facebook
ABS Fjölmiðlahús ehf - kt. 700701-2040 - Bergstaðastræti 54 - 101 Reykjavík - Sími: 510 8700 - absmedia@absmedia.is