ABS
Skoðanakönnun
Fylgist þú með HM?
Notandi:
Lykilorð:

ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.

 

5. júlí 2010 12:52

BNA: Fótbolti slær út körfuboltann!

Aldrei hefur knattspyrnuleikur dregið fleiri Bandaríkjamenn að sjónvarpstækjum sínum og viðureign landsliðs þeirra við Gana í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins um daginn.  

Samkvæmt mælingum sáu 19,4 milljónir Bandaríkjamanna útsendinguna frá leiknum. Það er 1,3 milljónum manna fleiri en fylgdust með síðasta úrslitaleik LA Lakers og Boston um NBA titilinn í körfuknattleik í vor.

 

Fyrra áhorfsmet á knattspyrnuleik í Bandaríkjunum var frá úrslitaleik Brasilíu og Ítalíu á HM 1994 sem fram fór í Bandaríkjunum. Talið er að rúmar 18 milljónir hafi fylgst með þeim leik í sjónvarpi.  

 

Heimild: Mbl.is

Sjá nánar á http://www.mbl.is/mm/sport/hm_fotbolta/2010/06/30/metfjoldi_sa_bandarikin_falla_ur_leik/

Senda á Facebook
ABS Fjölmiðlahús ehf - kt. 700701-2040 - Bergstaðastræti 54 - 101 Reykjavík - Sími: 510 8700 - absmedia@absmedia.is