ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.
Í nýlegu fréttabréfi sínu fjallar Erwin Ephron nokkuð um dekkun og tíðni. Eins og hans er von og vísa er þetta sett fram á einfaldan og skemmtilegan hátt og vekur menn til umhugsunar.
"Á upphafsárum sjónvarps var litið á auglýsingar eins og kennslu. Stöðug endurtekning var málið." - Sjá nánar á http://www.ephrononmedia.com/article_archive/cover_article.asp
Það er verðugt að velta fyrir sér dekkun og tíðni þegar HM í knattspyrnu er i hámarki. Hvað eru leikirnir að skila okkur?
Mesta áhorfið í síðustu viku mældist 32,5 meðaláhorf en það var á leik Brasilíu og Fílabeinsstrandarinnar. Í öðru sæti var viðureign Frakka og Mexíkóa með 28,8% meðaláhorf og númer þrjú var leikur England og Alsír með 26,5% meðaláhorf.