ABS
Skoðanakönnun
Lestu hverfisblaðið/bæajarblaðið þitt?
Notandi:
Lykilorð:

ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.

 

1)       Birtingaáætlanir og umsjón

ABS fjölmiðlahús sérhæfir sig í birtingaráðgjöf og umsjón birtinga.

 

2)       Auglýsingamælingar ABS

Auglýsingamælingar ABS gefa ítarlegar upplýsingar um allar auglýsingar sem birtast í blöðum og sjónvarpi. Þær segja til um hve mikið fyrirtæki auglýsa, hvar og hvenær.

 

Auglýsingamælingar ABS:

  • Gefa yfirsýn og eftirlit með birtingum viðskiptavina okkar
  • Gefa kost á að fylgjast með auglýsingum samkeppnisaðilanna
  • Gefa kost á að fylgjast með hvernig auglýsingar hafa áhrif á sölu og markaðshlutdeild

 

3)       Auglýsinga- og markaðsrannsóknir

Rannsóknadeild ABS-Fjölmiðlahúss veitir viðskiptavinum sínum faglega ráðgjöf á sviði rannsókna. Ráðgjöfin er veitt varðandi hvers kyns markaðsrannsóknir; markhóparannsóknir, fjölmiðlarannsóknir, neyslukannanir, kannanir á auglýsingaeftirtekt og margt fleira. Rannsóknadeild ABS-Fjölmiðlahúss aðstoðar einnig viðskiptavini sína við nýtingu upplýsinganna, vinnur ítarlegar markhópagreiningar, túlkar niðurstöður og ályktar um þróun og mögulegar aðgerðir.

 

4)       Athyglismælingar - ,,Eye tracking”

ABS-fjölmiðlahús hefur fest kaup á ,,Eye Tracking" (ET) tæki sem mælir sjónhreyfingar áhorfenda.  Með ET-búnaðinum er hægt að gera ítarlega greiningu á því hvað fangar athygli mismunandi markhópa og hvernig þeir meðtaka skilaboð auglýsenda.  Þannig geta auglýsendur valið á markvissari hátt staðsetningu skilaboða í auglýsingum og á vefsíðum.

 

ABS Fjölmiðlahús ehf - kt. 700701-2040 - Bergstaðastræti 54 - 101 Reykjavík - Sími: 510 8700 - absmedia@absmedia.is