ABS
Skoðanakönnun
Lestu hverfisblaðið/bæajarblaðið þitt?
Notandi:
Lykilorð:

ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.

 

Hugtakalisti


Dekkun (e. Reach)

Dekkun er notuð til að bera saman styrk mismunandi miðla. Hún segir til um hversu margir í markhópnum hafa raunverulega tækifæri til að sjá auglýsinguna.

 

Uppsöfnuð dekkun

Uppsöfnuðu dekkun er notuð til að bera saman styrk mismunandi miðla. Hún segir okkur til hversu margra miðillinn nær til yfir ákveðið tímabil.

 

TÍÐNI (e. Frequency)

Hversu oft náum við í hvern og einn að meðaltali. Tíðnin er meðaltal af þeim sem sáu auglýsinguna.

 

GRP/TRP – Áreitispunktar (e. GrossRatingPoints/TargetRatingPoints)

Áreitispunktar er uppsafnað margfeldi af dekkun og tíðni  (GRPs = dekkun x tíðni).

 

Snertiverð (e. Cost per Thousand, CPM)

Snertiverð er mælieining sem notuð er til að meta hvað það kostar okkur að ná í hvern og einn innan markhópsins. Það segir okkur hversu mikið það kostar að ná í hvern einstakling í tilteknum auglýsingatíma. Snertiverð er reiknað út frá dekkun og verði miðilsins. Snertiverð gefur til kynnahagkvæmni þess að nota mismunandi miðla og auglýsingatíma.  

 

Marktekt

Merking tölfræðilegrar marktektar felst í því hvort hægt sé að alhæfa mun í úrtaki yfir á þýði. Við úrvinnslu á niðurstöðum eru alla jafnan notuð tölfræðipróf sem greina hvort munur á tilteknum hópum sé tölfræðilega marktækur eða ekki. Þar sem einungis er verið að vinna með úrtök eru marktektarpróf notuð til að meta hvort hægt sé að staðhæfa um mun í því þýði sem úrtakið var dregið úr. Ef niðurstaða er tölfræðilega marktæk má álykta sem svo að munur sé á þessum hópum í þýðinu.

ABS Fjölmiðlahús ehf - kt. 700701-2040 - Bergstaðastræti 54 - 101 Reykjavík - Sími: 510 8700 - absmedia@absmedia.is