ABS er þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem veitir ráðgjöf um markaðsstefnu, gerð auglýsingaáætlana og rannsóknir á sviði markaðsmála.
Auðvitað skiptir máli hvað þú segir í auglýsingum en hvernig þú segir það skiptir enn meira máli. Þetta tvennt fellur þó um sjálft sig ef enginn sér auglýsingarnar! ABS-Fjölmiðlahús sérhæfir sig í að koma mikilvægum skilaboðum á framfæri þar sem þau sjást!
Einkunnarorð ABS-Fjölmiðlahúss eru hagkvæmni og skilvirkni. ABS er stærsta fjölmiðlahús landsins sem tryggir viðskiptavinum sínum ávallt hagstæðustu samningana við fjölmiðla. Birtingaráðgjöf ABS miðast fyrst og fremst við að hámarka nýtingu auglýsingafjármagns.